Allt að gerast:)
02.01.2006 15:03:46 / Sara

betra seint en aldrei!!

Ég verð nú að viðurkenna að maður hefur verið heldur latur við að skrifa inn á þetta blessaða blogg. Ég er nú kanski ekki heldur tölvuvæddasta manneskja í heimi ...eins og margir eflaust vita :)
Langaði bara að nota tækifærið og óska öllum gelðilegrar hátíðar og farsældar á nýju ári.
Reyni að vera kanski aðeins duglegri í blogginu á nýju ári.

Nýárskveðja Sara Björk

» 7 hafa sagt sína skoðun

13.03.2005 21:01:30 / Sara

Allt á fullu

Haus: Allt á fullu

Það er búið að var mikið að gera þessar síðustu vikur. Skólinn kominn alveg á fullt þó að ég sleppi reyndar frekar vel hvað heimavinnuna varðar. Ég fer alltaf 2 í viku í ítölskutímana skemmtilegu......ótrúlegt hvað 2 tímar geta verið lengi að líða.Veðrið fer batnandi hérna hinumeginn, það snjóaði smá fyrir viku. Soltið skondið því krakkarnir hlupu allir úr tíma til að finna snjóinn sem var í raun bara smá slabb. En svo daginn eftir fór hitinn upp í 17°C, þannig að þetta er mjög breytilegt. Við Eugy héldum smá partý um daginn, ég bauð ameríkönunum og hún e-m skólafélögum. Við elduðum saman ítalskan mat og íslenskan eftirrétt. Pasta og fyllt brauð og ísl. eplapie, pönnukökur og muffins, allir kunnu gott að meta. Þarsíðasta sunnudag bauð Clare mér svo í smá ferðalag með fjölskyldunni sinni. Við keyrðum til Aberobello, sem er mjög fallegur bær nálægt Bari, þar sem öll húsin eru máluð “skjanna” hvít. Röltum um bæinn og fengum okkur gelato. Keyrðum svo í sumarhúsið þeirra, trullo, sem er ákveðin gerð af húsi og  borðuðum hádegismat. Héldum svo heim um kveldið á 170km hraða með aðra hönd á stýri.....án gríns!! Þeir kunna sko enganvegin að keyra þessir ítalir og ég er ekki frá því að þeir versni bara með aldrinum því unglingarnir eru mun skárri.
Lisa, hin ameríkanska stelpan, lenti í vandræðum með host fjölskylduna sína og þurfti að skipta um heimili. Domenica, fyrrverandi host mamman, var heldur leiðinleg við hana (gaf henni bara funghi að éta). En hún er komið með nýja fjölskyldu og allir eru voða happy. Ég fór í mitt fyrsta barnaafmæli hér um daginn, íslensk börn eru hávær...en þau ítölsku eru verri!!! Ég fór með þrefaldar hellur fyrir eyrunum úr afmælinu, þau öskruðu gjörsamlega allan tímann......muna eftir eyrnatöppunum næst. Ég fór í skemmtilega heimsókn til trúnaðarmannsins míns í fyrsta skipti, Robertu, mjög hress 5 barna móðir. Hún bauð mér í hádegismat og svo eftir matinn rétti hún mér skrúfjárn og lét mig setja saman hillusamstæðu fyrir yngsta soninn. Ég hafði sagt henni að bæði pabbi minn og bróðir minn væru smiðir þannig að hún auðvita gerði ráð fyrir því að það væru líka mín framtíðarplön, að þetta væri bara í genunum. Jamm en þótt ótrúlegt sé að þá reddaði ég þessu, tók smá tíma að púsla þessu saman en ég veit ekki betur en að hillan standi enn. Þarsíðasta sunnudag var mér og fjölskyldu minni boðið í hádegismat. Ég er búin að komast að því að ítalir gera ekki neitt annað en að éta á sunnudögum. Svo er hver máltíð svo löng þannig að þetta rennur allt saman í eina máltíð, morgunmatur, hádegismatur og kvöldmatur, mádmatur. Þann 8. mars var svo konudagurinn og þá skellti ég mér í leikhús um morguninn ásamt nokkrum bekkjarfélögum, sáum Rómeó og Júlíu á ensku. Bara nokkuð flott sýning. Svo um kvöldið fórum við nokkrar vinkonurnar á karókíbar, þar sem var sungið af miklum krafti. Daginn eftir var svo önnur veisla, nafnaveisla systur minnar Francescu, kökur, pakkar og flottheit. Í dag fengum við vinafólk okkar í mat og eftir langan matartíma héldum við til Polingnano sem er “lítill” bær í klukkutíma fjarlægð. Þessi bær er alveg æðislegur, hann er alveg við sjóinn og öll húsin standa á hálfgerðum klettum. Hann er mjög gamall og götunar frekar þröngar, svo eru öll húsin hlaðin úr steinum, þetta er svona ekta túristabær. Veðrið var líka mjög gott í dag, sól og logn, þannig að við enduðum daginn auðvita á því að fá okkur gelato!! Mmmmm..........:)
En jæja ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili. Þið verðið þó að afsaka hvað ég skrifa sjaldan inn á bloggið, tölvumenningin er soltið frábrugðin þeirri sem er heima og svo er náttla alltaf nóg að gera    Kveð í bili Sara Björk



» 10 hafa sagt sína skoðun

01.03.2005 21:22:37 / Sara

Ath. sma breyting a adressunni!!!!!

hae hae, adressan er rett en eg gleymdi ad nefna tad ad tad er ekki haegt ad senda neitt a minu nafni, tad verdur ad stila allt a italska "pabba" minn:

Falco Giuseppe
Via Napoli 389/D
70123 Bari
Italy

tel: 0805346603

» 10 hafa sagt sína skoðun

22.02.2005 22:20:58 / Sara

e-d

Jæja loksins, þið verðið að afsaka hvað þetta kemur seint inn. Það er búið

> að vera þvílíkt vandamál með internet tenginguna á heimilinu. Búinn að

> koma maður 2 sinnum og reyna að laga þetta en ekkert gengur. Ég nennti

> ekki að bíða lengur þannig að ég skellti mér bara á einn af þessum

> net-kaffi stöðum.

> Allavega...flugið til Ítalíu gekk vel og við Fjóla komum á hótelið í Róm á

> miðnætt. Um morguninn byrjaði 3 daga námskeið sem allir skiptinemarnir frá

> öllum löndunum þurftu að mæta á. Það er óhætt að segja að námskeiðin sjálf

> hafi verið dead boring þar sem maður skildi ekki baun í tungumálinu, en

> hins vegar kynntist maður böns af krökkum frá öllum heimshlutum. Á öðrum

> degi skelltum við okkur til Rómar og váááááá.......... þetta er flott

> borg, en líka soltið köld þar sem það hefði mátt vera hlýrra í veðri. Um

> kvöldið var svo hæfileikakeppni, sem ég persónulega hafði ekki ætlað mér

> að taka þátt í, en nei nei allt kom fyrir ekki við Fjóla vorum beðnar um

> að syngja eitt ekta íslenskt lag fyrir allan hópinn......já ALLAN hópinn

> og við erum sko að tala um hátt í 100 manns. Við sögðum að við skildum nú

> redda því með 15 mínútna fyrirvara. Stál og hnífur varð fyrir valinu og

> þöndum við raddböndin eftir bestu getu. Að söngnum loknum var ég svo beðin

> um að útskýra hvað lagið væri nú eiginlega um, þá blöskraði mér nú alveg

> og ég endaði því bara á að segja að þetta væri styttri útgáfan af íslenska

> þjóðsöngnum. Þriðji dagurinn var bara sonna kveðjudagur og um 9 leytið

> lagði ég af stað á lestarstöðina ásamt bandarísku herbergisfélögunum mínum

> þeim Clare, Lisu og Katrinu......ekta bandaríkjamenn.

> Ég hitti fjölskylduna mína á lestarstöðinni og svo var haldið heim. Þegar

> þangað var komið sýndu þau mér húsið sem lýkist í raun meira hóteli eða

> samkomuhúsi en einbýlishúsi. Þetta er alveg huges hús á 4 hæðum.

> Foreldrarnir tala nánast enga ensku og ég kann varla stakt orð í ítölsku,

> þannig að elsta stelpan Eugenia er eins konar túlkur fyrir okkur eins og

> er. Pabbinn, Giuseppe, er mikill íslandsaðdáandi og byrjaði því fyrsta

> kvöldið á að fræðast meira um Ísland. Þau rúntuðu smá með mig um bæjinn og

> sýndu mér hvar miðbærinn var og skólinn. Þetta er ekkert voða ólíkt lífinu

> á Íslandi en þó komst ég nú fljótt að því að ítalir kunna enganveginn að

> keyra, þeir virða ENGAR umferðareglur og keyra á 130 kílómetra hraða

> innanbæjar, beltislaus, auk þess sem þeir nota bílflautuna við allar

> aðstæður. Ítalir virðast líka vera soltið hræddir við að blotna því þeir

> taka regnhlífarnar með sér hvert sem þeir fara. Maturinn hér er yfir höfuð

> bara helvíti góður...toppar þó ekki matinn "íslands mömmu" en ísinn hérna

> er þó án efa sá besti sem ég hef smakkað.

> Ég skellti mér í miðbæinn fyrsta laugardagskvödið með Eugy og vinkonum

> hennar. Við fengum okkur að borða á einni heldur snyrtilegri krá og

> löbbuðum svo bara um bæinn, sem var vægast sagt troðfullur af fólki. Á

> sunnudeginum ætlaði ég svo heldur betur að taka hádegismatinn í mínar

> hendur og elda handa fjölskyldunni grjónagraut. Hann heppnaðist alveg

> helvíti vel þó að þau hafi étið hann á heldur sérkennilegan máta. Þau

> tróðu honum inn í franskar pönnukökur og stráðu svo kanilsykrinum

> yfir.........og svo voru þau að furða sig á því að ég setti epli ofaná

> ristað brauð!!!!

> Skóli skóli skóli.....Fyrsti skóladagurinn var nú sonna doltið skrautlegri

> en ég bjóst við. Ég var búin að búa mig undir það að fyrstu dagana yrði ég

> frekar ,,útundan" og það tæki kanski nokkrar vikur að komast almenninglega

> inn í hópinn. Það reyndist hins vegar alveg alrangt. Þegar ég gekk inn í

> skólastofurnar soguðust gersamlega allir krakkarnir að mér og ég hugsa að

> ég hefði verið étin lifandi þarna á staðnum hefðu kennararnir ekki verið

> þarna. Þar sem ég er fyrsti og eini skiptineminn sem komið hefur í þennan

> skóla er allt mjög óskipulagt enn sem komið er. Ég má í raun alveg ráða

> hvaða tíma ég vil fara í og með hverjum, stundaskráin mín er soltið götótt

> núna þannig að ég er eilla bara svona út um allt. Auk þess talar bara 1

> kennari ensku í öllum skólanum þannig að það er erfitt að útskýra fyrir

> kennurunum hvar ég stend í öllum hinum fögunum. Krakkarnir eru samt búnir

> að vera mjög hjálpsamir, þau þýða allt sem kennararnir segir og svo tók

> einn herramaður sig til og gerði samantekt á ensku um ítalskar bókmenntir,

> það er víst eitthvað sem ég á að fara að læra. Það eru allir mjög

> forvitnir um Ísland, sumir krakkarnir halda að heimaland mitt sé alveg

> hræðilega vanþróað. Spurja hvort ég hafi smakkað pasta eða pizzu áður eða

> hvort íslendingar viti hvað ávextir eru, sumir eru líka á því að ég sjái

> sólina bara nokkrum sinnum á ári.

> Síðastliðið föstudagskvöld var mér boðið á rokktónleika ásamt Eugy, það

> var bara mjög fínt. Þurftum samt að fara snemma heim því það var skóli

> daginn eftir.

> Veðrið er búið að vera sonna upp og niður síðustu daga frá 5 - 15°C,

> frekar kalt svo að hér eru allir búnir að liggja með flensu. Í síðustu

> viku voru það ,,mamma" og Francesca, núna er það ég og Eugy Ekkert

> alvarlegt samt bara kvef, hálsbólga og hósti, auk smá tognunar í fæti

> eftir síðasta íþróttatíma. Flaug nebbla sonna skemmtilega á hausinn í

> miðjum æsispennandi blakleik...... mjög vandræðalegt. Annars er bara allt

> gott að frétta.

> Síðastliðið þriðjudagskvöld héldum við systa smá partý, í tilefni þess að

> þetta var víst dagur einhleypra. Við eyddum öllum deginum í eldhúsinu,

> gerðum ítalskan mat og íslenskan eftirrétt sem vakti mikila lukku.

> Ég er byrjuð í ítölskutímum á vegum AFS núna, búin að mæta 2 sinnum og

> lýst bara vel á þetta.......fyrir utan það að kennarinn talar enga ensku.

> Jamm, það tekur smá tíma að ná því sem miss no-name er að segja (köllum

> hana noname því engin okkar getur borið nafnið hennar rétt fram). Ég er

> farin að skilja ponkulítið í ítölskunni núna en ég get nánast ekkert talað

> enn.

> Í gær buðu bekkjarfélagar mínir mér svo á nútíma leiklistarsýningu á vegum

> skólans. Sýningin var bara mjög fín, þetta var sonna hálfgerð

> spuna-danssýning með stólum og hvítu laki. Ég skildi ekki alveg

> söguþráðinn, en það gerðu vinir mínir ekki heldur!

> Allora, ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili. Ég er búin að vera í

> frekar litlu sambandi við Íslandið góða vegna tölvuvandræðanna, veit

> ekkert hvað er að gerast þarna hinumegin. Fjölskyldan er búin að fjárfesta

> í web-cameru og svo downloaduðu þau msn fyrir mig þannig að þetta er allt

> að koma. Hlakka til að heyra í ykkur öllum.

> Bestu kveðjur Sara Björk


» 12 hafa sagt sína skoðun

23.01.2005 18:29:42 / Sara

Matur, kökur og brjálaðir ættingjar

Sælt verið fólkið, nú er loks runninn upp heilagasti vikudagur okkar íslendinga, já ég er að tala um sunnudaginn. Hann var nú samt ekkert voða rólegur hjá mér. Já ég var sko rekinn upp úr rúminu kl. 11:55 og mér dröslað inn í eldhúsið þar sem ég hófst handa við að baka risa eplapie. Svo um fjögur leytið ruddust hér inn hátt í 12 manns, jamm hele familían mætt á svæðið :|
Þetta var nú samt bara helvíti fínt, átum á okkur gat, æfðum nokkur löggutök og horfðum á þennan æsispennandi handboltaleik í beinni.........já við íslendingar leynum sko á okkur:lol:
Ég læt þetta duga í bili, ætli maður verði ekki að fara að pakka einhverju niður áður enn maður yfirgefur landið;) Bless í bili


» 7 hafa sagt sína skoðun

19.01.2005 23:10:10 / Sara

Komin í bloggmenninguna!!:)

jæja gott fólk!!!!
maður er nú kominn með síðu og alles. Er nú bara rétt að byrja en nú getið þig fylgst með öllum mínum daglegu athöfnum:haha:

» 7 hafa sagt sína skoðun